Haukar völtuðu yfir nýliðana

Alexandra Líf Arnarsdóttir skýtur að marki Gróttu. Katrín Anna Ásmundsdóttir …
Alexandra Líf Arnarsdóttir skýtur að marki Gróttu. Katrín Anna Ásmundsdóttir fylgist með. Anna Karólína Ingadóttir er í marki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar fóru illa með nýliða Gróttu í úrvalsdeild kvenna í handbolta á heimavelli sínum á Ásvöllum í kvöld, 30:11.

Haukar eru með sex stig, eins og Valur og Fram sem eiga leik til góða. Grótta er með tvö stig.

Haukakonur voru með undirtökin allan tímann og var staðan í hálfleik 16:7. Haukaliðið hélt svo áfram að bæta í forystuna í seinni hálfleik.

Mörk Hauka: Elín Klara Þorkelsdóttir 7, Sara Katrín Gunnarsdóttir 5, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 3, Ragnheiður Sveinsdóttir 2, Inga Dís Jóhannsdóttir 2, Berglind Benediktsdóttir 1, Birta Lind Jóhannsdóttir 1, Sara Odden 1, Ragnheiður Ragnarsdóttir 1.

Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 10, Elísa Helga Sigurðardóttir 2.

Mörk Gróttu: Daðey Ásta Hálfdánsdóttir 3, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 2, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Ída Margrét Stefánsdóttir 2, Katrín Anna Ásmundsdóttir 2.

Varin skot: Tölfræði vantar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert