Íslendingarnir með fullt hús á toppnum

Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk.
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk. Ljósmynd/Jon Forberg

Kolstad vann sinn fimmta leik í fimm leikjum í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld er liðið lagði Nærbø á heimavelli, 30:27.

Benedikt Gunnar Óskarsson átti flottan leik fyrir Kolstad og skoraði fjögur mörk. Sveinn Jóhannsson gerði eitt en Sigvaldi Björn Guðjónsson komst ekki á blað.

Arendal er í áttunda sæti með fjögur stig en liðið mátti þola tap á heimavelli gegn Bækkelaget, 28:25. Dagur Gautason skoraði fjögur mörk fyrir Arendal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert