Íslenskt dómarapar í Evrópudeildinni

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson.

Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson munu í sameiningu dæma leik þýska liðsins Flensburg og króatíska liðsins Sesvete í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik næstkomandi þriðjudag.

Handbolti.is vekur athygli á því að Sigurður og Svavar muni koma til með að dæma leikinn, sem fer fram í Flensburg.

Þá verður Kristján Halldórsson eftirlitsmaður á leik þýska liðsins Kiel og spænska liðsins Torrelavega sem fer fram á þriðjudagskvöld í Kiel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert