Kadetten hafði betur gegn Suhr Aarau í toppslag efstu deildar svissneska handboltans í kvöld, 41:31.
Óðinn Þór Ríkharðsson var eins og oft áður markahæstur hjá Kadetten. Hornamaðurinn skoraði níu mörk og var markahæstur á vellinum.
Kadetten er nú með tólf stig á toppnum, tveimur stigum meira en Suhr Arau í öðru sæti.