Markahæstur í naumum sigri

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði sjö.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði sjö. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Amo vann nauman sigur á Guif, 36:35, á heimavelli í efstu deild Svíþjóðar í handbolta í kvöld.

Arnar Birkir Hálfdánsson lék vel með Amo og var markahæstur með sjö mörk. Liðið er í fimmta sæti með fimm stig.

Tryggvi Þórisson gerði tvö mörk fyrir Sävehof í kvöld, en þau dugðu ekki til því liðið tapaði fyrir Hallby á útivelli, 26:24. Sävehof er í þriðja sæti með sex stig, en með tvö töp í röð.

Dagur Sverrir Kristjánsson komst ekki á blað hjá Karlskrona í sigri á Kristianstad í Íslendingaslag, 32:28, á heimavelli.

Ólafur Guðmundsson og Þorgils Jón Svölu Baldursson voru ekki með Karlskrona. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði ekki fyrir Kristianstad.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert