Japanskur markvörður í Stjörnuna

Aki Ueshima er komin til Stjörnunnar.
Aki Ueshima er komin til Stjörnunnar. Ljósmynd/Stjarnan

Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við japanska markvörðinn Aki Ueshima um að leika með kvennaliði félagsins á tímabilinu.

Ueshima er 23 ára gömul landsliðskona Japans sem lék með til að mynda með landsliðinu í undankeppni Ólympíuleikanna í vor.

Hún hefur á ferlinum leikið í heimalandinu og í Hollandi með liði Dalfsen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert