Jóhanna sterk í sigri

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði fimm mörk í kvöld.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði fimm mörk í kvöld. Ljósmynd/Jon Forberg

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, landsliðskona í handbolta, átti góðan leik með Kristianstad þegar liðið sigraði Westfriesland, 32:23, á heimavelli í fyrri leik liðanna í 1. umferð Evrópubikar kvenna í dag.

Jóhanna skoraði fimm mörk í leiknum og liðið er nú með níu marka forskot fyrir seinni leik liðanna sem er næstkomandi laugardag á útivelli.

Kristianstad var 12:16 undir í hálfleik en kom vel inn í seinni hálfleik og Jóhanna skoraði öll sín mörk þá. Berta Rut Harðardótt­ir náði ekki að skora fyr­ir liðið í leikn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka