Óðinn Þór Ríkharðsson var seigur í 30:26-sigri Kadetten á Kreuzlingen í svissnesku A-deildinni í handknattleik í dag.
Óðinn var markahæstur í Kadetten með sex mörk úr níu skotum.
Kadetten er í esta sæti deildarinnar með 16 stig eftir níu leiki en öll önnur lið nema Kadetten á Kreuzlingen hafa aðeins spilað sjö leiki.