Landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson áttið góðan leik með Skanderborg þegar liðið sigraði Skjern, 30:29, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Kristján skoraði fjögur mörk úr níu skotum í naumum sigri liðsins sem kemur þeim upp í tíunda sæti en liðið er með fjögur stig eftir fimm leiki.
Hann gekk til liðs við Skanderborg frá Aix í Frakklandi fyrir tímabilið.