Markahæstur í Íslendingaslagnum

Ómar Ingi Magnússon skoraði sjö mörk.
Ómar Ingi Magnússon skoraði sjö mörk. Eggert Jóhannesson

Magdeburg hafði betur gegn Göppingen, 31:24, á heimavelli í efstu deild þýska handboltans í kvöld.

Mabdeburg er í sjöunda sæti með sex stig, en með leik til góða á nær öll lið deildarinnar eftir þátttökuna á HM félagsliða. Göppingen er í 17. og næstneðsta sæti með aðeins eitt stig.

Ómar Ingi Magnússon var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson gerði þrjú. Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö fyrir Göppingen.

Rhein-Neckar Löwen hafði betur gegn Hamburg á heimavelli, 30:27. Arnór Snær Óskarsson skoraði ekki fyrir Löwen, sem er í þriðja sæti með átta stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert