Stóð fyrir sínu í Svíþjóð

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fimm. Haraldur Jónasson/Hari

Amo gerði í kvöld jafntefli við Malmö, 28:28, á útivelli í efstu deild Svíþjóðar í handbolta.

Arnar Birkir Hálfdánsson hefur leikið vel með Amo á leiktíðinni og hann skoraði fimm mörk. Aðeins Mark Pedersen skoraði meira fyrir Amo, eða sex mörk.

Amo er í fimmta sæti deildarinnar með sex stig eftir fimm leiki, fjórum stigum á eftir toppliði Ystad.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert