Íslendingarnir fá nýjan þjálfara

Elvar Örn Jónsson fær nýjan þjálfara.
Elvar Örn Jónsson fær nýjan þjálfara. Eggert Johannesson

Þýska handknattleiksfélagið Melsungen hefur ráðið Finn Lemke sem nýjan aðstoðarþjálfara karlaliðs félagsins.

Hann tekur við af Arjan Haenen sem lét óvænt af störfum í byrjun vikunnar. Lemke þekkir Melsungen afar vel, því hann lék með liðinu frá 2017 til 2023.

Hann verður Spánverjanum Roberto Parrondo til halds og trausts. Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson leika með Melsungen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert