Skutust upp í annað sætið

Guðmundur Bragi Ástþórsson í leik með Haukum á síðasta tímabili.
Guðmundur Bragi Ástþórsson í leik með Haukum á síðasta tímabili. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjerringbro/Silkeborg, sem Guðmundur Bragi Ástþórsson leikur með, tyllti sér í annað sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla með því að vinna sterkan útisigur á Sönderjyske, 29:25, í kvöld.

Bjerringbro/Silkeborg er nú með tíu stig, fjórum á eftir toppliði GOG.

Hafnfirðingurinn Guðmundur Bragi átti fínan leik og skoraði tvö mörk fyrir Bjerringbro/Silkeborg ásamt því að gefa tvær stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert