Jafnt í Íslendingaslagnum

Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö í dag.
Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Göppingen og Gummersbach skildu jöfn í Íslendingaslagnum, 24:24, í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag.  

Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyrir Göppingen. Elliði Snær Viðarsson spilaði fyrir Gummersbach en náði ekki að koma sér á blað. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach

Úrslitin þýða að Gummersbach situr í áttunda sæti með átta stig eftir sjö leiki. Göppingen er í 15. sæti með tvö stig eftir sex leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert