Lygileg sigurganga Valskvenna

Elísa Elíasdóttir skýtur að marki Hauka.
Elísa Elíasdóttir skýtur að marki Hauka. mbl.is/Hákon

Íslandsmeistarar Vals eru enn með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar kvenna í handbolta eftir sigur á Haukum í 5. umferðinni á Hlíðarenda í dag, 28:22. Valur hefur unnið 32 leiki í röð í öllum keppnum.

Haukar eru áfram í þriðja sæti með sex stig, fjórum stigum á eftir Val. Fram er í öðru sæti með sjö stig.

Valskonur náðu fljótt tveggja marka forskoti, 4:2. Tókst Haukum ekki að jafna eftir það í fyrri hálfleik og Valskonum gekk illa að stinga Haukana af.

Munurinn varð mestur fjögur mörk, 10:6. Haukar minnkuðu muninn í 11:10 og munaði tveimur mörkum þegar fyrri hálfleikurinn var allur, 12:10.

Valur byrjaði seinni hálfleikinn á því að ná fimm marka forskoti í fyrsta skipti, 16:11. Valsliðið hélt áfram að bæta í og var staðan 20:14 þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður.

Haukar voru ekki líklegir til að jafna það sem eftir lifði leiks og enn einn sigur Valsliðsins staðreynd. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

FH 6:4 Fjölnir opna
14. mín. Fjölnir tekur leikhlé FH-ingar tveimur mörkum yfir.
Njarðvík 0:0 Álftanes opna
Engir atburðir skráðir enn

Leiklýsing

Valur 29:22 Haukar opna loka
60. mín. Thelma Melsted Björgvinsdóttir (Haukar) skoraði mark Sterk á línunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert