Óðinn öflugur í sigri

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk í dag.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex mörk í dag. AFP/Ina Fassbender

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen sigruðu 36:29 gegn Wacker Thun í svissnesku A-deildinni í handbolta í dag.

Óðinn var öflugur og skoraði sex mörk úr átta skotum.

Kadetten er á toppi svissnesku A-deildarinnar með 18 stig eftir 10 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert