Tumi heldur áfram að spila vel

Tumi Steinn Rúnarsson var góður í dag.
Tumi Steinn Rúnarsson var góður í dag. Ljósmynd/Coburg

Tumi Steinn Rúnarsson átti góðan leik með Alpla Hard er liðið hafði betur gegn Barnbach, 30:26, í efstu deild Austurríkis í handbolta í dag.

Tumi Steinn skoraði fimm mörk í dag fyrir Alpla Hard en Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.

Alpla Hard er í þriðja sæti deildarinnar með 10 stig eftir sjö leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert