Íslendingaliðið með fullt hús stiga

Stiven Tobar Valencia skoraði eitt mark í kvöld.
Stiven Tobar Valencia skoraði eitt mark í kvöld. Ljósmynd/Benfica

Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar hans í Benfica eru með fullt hús stiga eða 4 stig í C-riðli Evrópudeildarinnar í handknattleik eftir öruggan sigur gegn Limoges í Portúgal í kvöld, 37:31.

Stiven skoraði eitt mark í leiknum en Benfica er með 4 stig í efsta sæti riðilsins og Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar hans í Kadetten koma þar á eftir með 2 stig.

Þá skoraði Guðmundur Bragi Ástþórsson tvö mörk fyrir Bjerringbro/Silkeborg þegar liðið lagði Zabrze, 30:26, í B-riðli keppninnar í Danmörku í kvöld en danska liðið er í þriðja sæti riðilsins með 2 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert