Áfall fyrir liðsfélaga landsliðsmanna

Mohamed Darmoul í leik með Melsungen.
Mohamed Darmoul í leik með Melsungen. Ljósmynd/Melsungen

Túnismaðurinn Mohamed Darmoul, leikmaður þýska handboltaliðsins Melsungen, meiddist á hné í Evrópusigri Melsugen á Vardar, 34:18, í gær. 

Darmoul mun ekki taka frekari þátt á tímabilinu vegna meiðslana og þá mun hann einnig missa af heimsmeistaramótinu með Túnis. 

Darmoul hefur verið stór póstur í liði Melsungen sem hefur byrjað tímabilið frábærlega. 

Landsliðsmennirnir Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson leika með Melsungen-liðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert