Ómar markahæstur í Meistaradeildinni

Ómar Ingi Magnússon skoraði sjö mörk.
Ómar Ingi Magnússon skoraði sjö mörk. Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Franska liðið Nantes gerði sér lítið fyrir og vann óvæntan sigur á Þýskalandsmeisturum Magdeburgar á útivelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld, 32:28.

Ómari Inga Magnússyni verður ekki kennt um tapið, en hann var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk og þá lagði hann upp þrjú mörk til viðbótar. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og lagði upp fimm.

Magdeburg er í sjötta sæti B-riðils með þrjú stig eftir sex leiki. Nantes er í öðru sæti með sex stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert