Ísak Steinsson átti stórleik í markinu hjá Drammen í heimasigri á Sandnes, 38:23, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.
Drammen er í öðru sæti norsku deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki.
Ísak varði 14 skot og var með 38% markvörslu.
Þá tapaði Íslendingalið Arendal fyrir Runar, 37:27, á útivelli.
Dagur Gautason skoraði 4 mörk fyrir Arendal en Árni Bergur Sigurbergsson var ekki með liðinu.