FH hafði betur gegn sænska liðið Sävehof, 34:30, í Evrópudeild karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.
Þetta var fyrsti sigur FH í Evrópudeildinni á tímabilinu.
FH liðið byrjaði frekar hægt og var skrefi á eftir allan seinni hálfleik eftir slaka byrjun FH á báðum vígstöðum, Savehoft var yfir allan fyrri hálfleik með 2-3 mörkum og staðan var 15:18 í fyrri hálfleik.
Markahæstur í fyrri hálfleik hjá FH var Garðar Ingi Sindrason með fjögur. Jón Bjarni Ólafsson og Símon Michael Guðjónsson skoruðu þrjú og þar af voru tvö víti hjá Simon sem átti mun betri dag á punktinum en í síðasta Evrópuleik þegar hann var 0/2. Daníel Freyr Andrésson byrjaði vel í markinu og varði sjö skot í fyrri, þar af eitt víti.
Hjá Savehoft var Færeyingurinn Óli Mittún með fjögur mörk í fyrri hálfleik og var rétt að byrja.
FH vaknaði í seinni hálfkeik en tók sér góðan tíma í það. Minnkaði muninn hægt og rólega og jafnaði loks í 25:25 á 48. mínútu. Savehoft komst aftur yfir en Ásbjörn Friðriksson jafnaði metin tvisvar og Garðar Ingi Sindrason kom svo FH yfir í fyrsta sinn í leiknum á 52. mínútu og FH átti frábærann lokakafla og sigraði að lokum 34:30.