Noregsmeistarar Kolstad unnu góðan sigur á Pick Szeged, 29:27, í 6. umferð Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í Szeged í kvöld.
Kolstad er komið með fjögur stig, tvo sigra og fjögur töp, eftir fyrstu sex leikina en Szeged er með sex stig, þrjá sigra og þrjú töp.
Benedikt Óskar Gunnarsson skoraði tvö mörk en Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sveinn Jóhannsson skoruðu ekki fyrir Kolstad.
Janus Daði Smárason skoraði þá tvö mörk fyrir Szeged.