Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur kallað línukonuna Katrínu Tinnu Jensdóttur úr ÍR í hópinn fyrir komandi vináttulandsleiki við Pólland.
Ísland mætir Póllandi í tveimur leikjum, sá fyrri fer fram á heimavelli Fram í Úlfarsárdal á föstudag klukkan 20.15 og sá seinni á Selfossi á laugardag klukkan 16.
Katrín Tinna hefur leikið 19 landsleiki og skoraði í þeim 19 mörk. Hún var með íslenska liðinu á HM á síðasta ári.