Stórkostleg tilþrif Viktors Gísla (myndskeið)

Viktor Gísli Hallgrímsson bauð upp á glæsileg tilþrif.
Viktor Gísli Hallgrímsson bauð upp á glæsileg tilþrif. Eggert Jóhannesson

Landsliðsmaðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson sýndi glæsileg tilþrif í marki pólska liðsins Wisla Plock er það mátti þola tap gegn Fredericia í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöldi.

Viktor varði níu skot í leiknum, mörg þeirra glæsilega, en það dugði ekki til gegn lærisveinum Guðmundar Guðmundssonar.

Samfélagsmiðladeild Meistaradeildarinnar vekur athygli á glæsilegum tilþrifum Viktors, sem sjá má hér fyrir neðan. Fleiri tilþrif Viktors má sjá með því að fletta á næstu síður færslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert