Dana spilar sinn fyrsta landsleik – Sandra hvílir

Íslenska kvennalandsliðið mætir því pólska í kvöld.
Íslenska kvennalandsliðið mætir því pólska í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handknattleik, hefur valið þá 18 leikmenn sem munu spila gegn Póllandi í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í Framheimilinu í Úlfarsárdal í kvöld. 

Leikurinn hefst klukkan 20.15 og það er frítt á völlinn. 

Dana Björg Guðmundsdóttir leikmaður Volda í Noregi er í hópnum og mun leika sinn fyrsta landsleik á eftir. 

Þá hvílir Sandra Erlingsdóttir, leikmaður Metzingen í Þýskalandi, og Elísa Elíasdóttir leikmaður Vals er ekki með vegna meiðsla. 

Eftirtaldir leikmenn taka þátt í leiknum í kvöld:

Markverðir:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus United (62/2)
Hafdís Renötudóttir, Valur (60/4)

Aðrir leikmenn:

Alfa Brá Hagalín, Fram (2/0)
Andrea Jakobsen, Blomberg-Lippe (54/81)
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (26/5)
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (0/0)
Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (54/73)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (14/38)
Eín Rósa Magnúsdóttir, Valur (21/45)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad (17/11)
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (2/1)
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (19/19)
Perla Rut Albertsdóttir, Selfoss (50/104)
Rut Jónsdóttir, Haukar (115/244)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (49/67)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (92/66)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (80/171)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (139/401)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert