Lék vel í toppslagnum

Túmi Steinn Rúnarsson átti flottan leik og fór í toppsætið.
Túmi Steinn Rúnarsson átti flottan leik og fór í toppsætið. Ljósmynd/Alpla Hard

Alpla Hard er komið upp í toppsæti efstu deildar austurríska handboltans eftir heimasigur á BT Füchse í kvöld, 36:28.

Tumi Steinn Rúnarsson átti fínan leik fyrir Alpla Hard og skoraði fimm mörk. Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard.

Bæði lið eru nú með tólf stig en Alpla Hard með sigur innbyrðis og betri markatölu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert