Bjerringbro-Silkeborg hafði betur gegn Ribe-Esbjerg, 33:28, á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Guðmundur Bragi Ástþórsson átti flottan leik fyrir Bjerringbro-Silkeborg og skoraði fimm mörk úr sex skotum.
Elvar Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir Ribe-Esbjerg og Ágúst Elí Björgvinsson varði þrjú skot í marki liðsins.
Guðmundur og félagar eru í öðru sæti með 14 stig. Ribe-Esbjerg er í 13. sæti af 14 liðum með þrjú stig.