Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðsmaður í handknattleik, var einu sinni sem oftar markahæsti leikmaður Kadetten þegar liðiði burstaði St. Gallen á útivelli, 37:22, í svissnesku A-deildinni í dag.
Óðinn skoraði úr öllum sjö skotum sínum í leiknum, þar af úr einu vítakasti.
Kadetten hefur unnið tíu af fyrstu ellefu leikjum sínum og er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar.