Dagur Gautason átti stórleik með norska liðinu Arendal í dag þegar það vann glæsilegan útisigur gegn Drama frá Grikklandi, 36:24, í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins í handknattleik.
Þetta var seinni leikur liðanna en Arendal vann heimaleikinn með aðeins tveggja marka mun þannig að staðan var tvísýn fyrir viðureignina í Grikklandi.
Eftir nokkuð jafnan leik stakk hins vegar Arendal af á lokakafla leiksins og Dagur lagði heldur betur sitt að mörkum því hann skoraði 10 mörk í leiknum.
Arendal fer því í 16-liða úrslitin, rétt eins og Haukar gerðu fyrr í dag, með samtals fjórtán marka mun.