Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik og fyrirliði Noregsmeistara Kolstad, átti stórleik fyrir síðarnefnda liðið þegar það vann öruggan sigur á Follo, 33:26, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í gær.
Sigvaldi Björn skoraði sjö mörk fyrir Kolstad og var markahæstur í leiknum. Benedikt Gunnar Óskarsson bætti við einu marki en Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað að þessu sinni.
Kolstad er í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 14 stig eftir átta umferðir.