Haukar verða í efri styrkleikaflokki á morgun þegar dregið verður til 32-liða úrslitanna í Evrópubikar karla í handknattleik.
Haukar slógu Cocks frá Finnlandi út í 2. umferð keppninnar með samanlagt ellefu marka mun.
Norsku Íslendingaliðin Drammen og Arendal, sem einnig komust áfram, eru líka í efri styrkleikaflokki og Haukar geta því ekki mætt þeim í þessari umferð.
Liðin í neðri styrkleikaflokknum sem eru þar með mögulegir mótherjar Hauka eru eftirtalin:
Krems, Austurríki
Kur, Aserbaídsjan
Leotar Trebinje, Bosníu
Porec, Króatíu
Anorthosis Famagusta, Kýpur
Mistra, Eistlandi
Pölva Serviti, Eistlandi
BK-46, Finnlandi
Diomidis Argous, Grikklandi
Brixen, Ítalíu
Rahoveci, Kósóvó
Alkaloid, Norður-Makedóníu
Lovcen, Svartfjallalandi
Runar, Noregi
Potaissa Turda, Rúmeníu
Motor, Úkraínu