Óðinn Þór Ríkharðsson varð enn einu sinni markahæstur hjá Kadetten er liðið sigraði Zürich, 30:20, í efstu deild svissneska handboltans í kvöld.
Óðinn skoraði sex mörk fyrir sitt lið, þar af tvö úr víti, og var markahæstur í sínu liði ásamt Marvin Lier.
Tímabil Kadetten hefur verið ansi gott til þessa en liðið er í toppsæti deildarinnar með 22 stig af 24 mögulegum. Kriens er í öðru sæti með 15 stig og leik til góða.