Arnar Birkir Hálfdánsson átti stórleik fyrir Amo í 39:38-tapi gegn Alingsås í átta liða úrslitum sænska bikarsins í dag.
Arnar fór á kostum og var markahæstur í liði Amo með níu mörk.
Í sænsku úrvalsdeildinni situr Amo í 11. sæti með sex stig eftir níu leiki.