Guðmundur Bragi Ástþórsson átti góðan leik fyrir Bjerringbro/Silkeborg þegar liðið gerði jafntefli við Ringsted, 28:28, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Guðmundur Bragi skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum og var næstmarkahæstur í leiknum.
Hafnfirðingurinn hefur leikið vel með liðinu frá því hann kom frá Haukum í sumar en Bjerringbro/Silkeborg er í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar með 15 stig, fjórum stigum á eftir toppliði GOG.