Stórgóður leikur Viggós

Viggó Kristjánsson.
Viggó Kristjánsson. AFP/Ina Fassbender

Viggó Kristjánsson átti stórgóðan leik í tapi Leipzig fyrir Flensburg, 35:29, í efstu deild þýska handboltans í Flensburg dag. 

Viggó skoraði átta mörk og lagði upp fimm til viðbótar. Andri Már Rúnarsson átti einnig góðan leik og skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar. Faðir Andra Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Leipzig-liðsins. 

Þá vann Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar, heimasigur á Hamburg, 33:29. 

Elliði Snær Viðarsson spilaði en skoraði ekki í liði Gummersbach. Þá er Teitur Örn Einarsson meiddur. 

Gummersbach er í fjórða sæti með 14 stig en Leipzig er í ellefta sæti með átta stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert