Fram er komið í átta liða úrslit bikarkeppni kvenna í handknattleik eftir sigur á Selfossi, 26:19, á Selfossi í kvöld.
Mikið jafnræði var á milli liðanna í fyrri hálfleik en hálfleikstölur voru 10:9 fyrir Framkonum.
Í seinni hálfleik voru Framarar þó sterkari og unnu að lokum sjö marka sigur.
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði átta mörk fyrir Fram en Steinunn Björnsdóttir skoraði fimm mörk.
Hjá Selfossi skoruðu Katla María Magnúsdóttir sex mörk, líkt og Perla Ruth Albertsdóttir.