Hvernig fór Viggó að þessu?

Viggó Kristjánsson glaðbeittur á æfingu íslenska landsliðsins.
Viggó Kristjánsson glaðbeittur á æfingu íslenska landsliðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson átti stórglæsilega línusendingu í leik Leipzig gegn Flensburg í efstu deild þýska handboltans um síðustu helgi. 

Viggó átti stórleik en hann skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar. Þrátt fyrir það allt tapaði Leipzig, 35:29. 

Ein af fimm stoðsendingum Viggós var alveg stórglæsileg, og hálf óskiljanleg. Þá laumaði hann boltanum einhvern veginn á Luka Rogan línumann sem skoraði. 

Myndskeið af línusendingunni má sjá hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert