Stjarnan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta með endurkomusigri gegn KA/Þór á Akureyri í kvöld. Urðu lokatölur 22:18.
KA/Þór, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, byrjaði mun betur og komst í 7:2 eftir 19 mínútur. Voru hálfleikstölur 12:7.
Heimakonur héldu forskotinu framan af í seinni hálfleik og var staðan 18:14 þegar 13 mínútur voru eftir.
Þá hrökk allt í baklás hjá KA/Þór, því Stjarnan skoraði átta síðustu mörkin og tryggði sér fjögurra marka sigur.
Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 7, Lydía Gunnþórsdóttir 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 3, Anna Þyrí Halldórsdóttir 3, Elsa Björg Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Matea Lonac 7.
Mörk Stjörnunnar: Tinna Sigurrós Traustadóttir 6, Anna Karen Hansdóttir 5, Embla Steindórsdóttir 4, Eva Björk Davíðsdóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1, Anna Lára Davíðsdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 4, Aki Ueshima 2.