Tugþúsundir búnar að sjá lygileg tilþrif Óðins

Óðinn Þór Ríkharðsson er brögðóttur.
Óðinn Þór Ríkharðsson er brögðóttur. Eggert Jóhannesson

Stórkostlegt skot landsliðsmannsins Óðins Þórs Ríkharðssonar á æfingu íslenska landsliðsins í handbolta hefur vakið mikla athygli.

Hornamaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði fram hjá Viktori Gísla Hallgrímssyni með ótrúlegum snúningi aftur fyrir bak.

Samfélagsmiðladeild evrópska handknattleikssambandsins birti tilþrifin á Instagram-síðu sinni og hafa rúmlega 60.000 manns líkað við myndbandið, sem sjá má hér fyrir neðan.

View this post on Instagram

A post shared by EHF EURO (@ehfeuro)

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert