Framarar sannfærandi í Hafnarfirði

Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir í harðri rimmu í kvöld.
Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir í harðri rimmu í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fram gerði frábæra ferð til Hafnarfjarðar og vann öruggan sigur á Haukum, 28:20, í 9. umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik á Ásvöllum í kvöld.

Fram er áfram í öðru sæti, nú með 14 stig, og Haukar eru sæti neðar með 12 stig.

Eftir jafnræði framan af fyrri hálfleik náði Fram góðri stjórn á leiknum um hann miðjan og komst mest sjö mörkum yfir, 15:8, áður en Haukar löguðu stöðuna, sem var 15:11 í hálfleik.

Í síðari hálfleik var Fram við stjórn allan tímann og vann að lokum þægilegan átta marka sigur.

Lena Margrét Valdimarsdóttir var markahæst í leiknum með sjö mörk fyrir Fram. Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir og Steinunn Björnsdóttir bættu við sex mörkum hvor.

Darija Zecevic varði 12 skot í marki Fram.

Hjá Haukum var Elín Klara Þorkelsdóttir markahæst með sex mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert