Markahæstur er Kolstad fór í úrslit

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk í kvöld.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk í kvöld. Ljósmynd/Jon Forberg

Sigvaldi Björn Guðjónsson lét til sín taka eins og venjulega hjá Íslendingaliði Kolstad þegar það lagði Drammen að velli, 33:29, í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í handknattleik í kvöld.

Í úrslitum mætir Kolstad annað hvort Íslendingaliði Arendal eða Elverum, en þau eigast nú við í hinum undanúrslitaleiknum.

Sigvaldi Björn var jafn markahæstur í leiknum með sex mörk fyrir Kolstad.

Liðsfélagar hans Benedikt Gunnar Óskarsson og Sveinn Jóhannsson komust ekki á blað að þessu sinni.

Ísak Steinsson varði tvö skot í marki Drammen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert