Leik Handknattleiksbandalags Heimaeyjar og Þórs frá Akureyri sem fara átti fram í 1. deild karla í handknattleik í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.
Leikurinn átti að fara fram í Vestmannaeyjum en erfitt er að ferðast þangað vegna slagviðris víða um land.
Í tilkynningu frá mótanefnd HSÍ segir að HBH og Þór muni koma sér saman um nýjan leiktíma.