Lærisveinar Guðjóns Vals í átta liða úrslit

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach. Ljósmynd/Gummersbach

Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, er komið áfram í átta liða úrslit þýska bikarsins í handknattleik karla eftir sigur á Bergischer, 29:24. 

Landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson eru báðir að glíma við meiðsli og tóku því ekki þátt í sigrinum. 

Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark fyrir Bergischer en Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert