Markahæstur í Íslendingaslag

Kristján Örn Kristjánsson.
Kristján Örn Kristjánsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Örn Kristjánsson átti stórleik fyrir Skandeborg þegar liðið heimsótti Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Leiknum lauk með eins marks sigri Skandeborgar, 27:26, en Kristján Örn skoraði sjö mörk í leiknum og var markahæsti maður vallarins. Skandeborg er með 12 stig í sjötta sæti deildarinnar.

Elvar Ásgeirsson skoraði eitt mark fyrir Ribe-Esbjerg en Ágústi Elí Björgvinssyni tókst ekki að verja skot í marki liðsins. 

Skandeborg er með 12 stig í sjötta sæti deildarinnar en Ribe Esbjerg er með 3 stig í 13. og næstneðsta sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert