Haukar unnu fyrri leikinn

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka í kvöld.
Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka í kvöld. Eggert Jóhannesson

Haukar unnu nauman sigur gegn Dalmatinka Ploce í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handbolta í Króatíu í kvöld.

Dalmatinka byrjaði viðureignina betur og var yfir með þremur mörkum í hálfleik, 13:10.

Dalmatinka komst í fjögurra marka forystu í síðari hálfleik, 20:16. Þá gáfu Haukar í og áttu frábæran lokakafla sem skilaði eins marks sigri, 24:23.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í liði Hauka en hún skoraði sex mörk. Alexandra Líf Arnarsdóttir var næst markahæst með fjögur mörk.

Seinni leikur liðanna fer fram klukkan 18:00 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert