Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged höfðu betur gegn Veszprém, 28:24, í toppslag efstu deildar ungverska handboltans í dag.
Janus Daði skoraði tvö mörk fyrir Pick Szeged. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Veszprém en samherji hans Bjarki Már Elísson komst ekki á blað.
Úrslitin þýða að Pick Szeged fer á toppinn með 18 stig en Veszprém er í öðru sæti með 16 stig.