Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar hans í Frederica höfðu betur gegn Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Frederica er í öðru sæti með 17 stig og Bjerringbro-Silkeborg er með 15 stig í fjórða sæti.
Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði tvö mörk fyrir Bjerringbro-Silkeborg en Einar Ólafsson og Arnór Viðarsson komust ekki á blað hjá Frederica.