Landsliðskonurnar í Evrópudeildina

Andrea Jacobsen í leik með Blomberg-Lippe.
Andrea Jacobsen í leik með Blomberg-Lippe. Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Landsliðskonurnar Andrea Jacobsen og Díana Dögg Magnúsdóttir leika með þýska liðinu Blomberg-Lippe í riðlakeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik eftir áramótin.

Blomberg-Lippe vann seinni viðureign þýsku Íslendingaliðanna gegn Metzingen, 35:27 á útivelli í kvöld og hafði áður unnið heimaleikinn á sannfærandi hátt, 30:21. 

Andrea skoraði fjögur mörk fyrir Blomberg-Lippe í leiknum og Díana Dögg þrjú en Sandra Erlingsdóttir lék ekki með Metzingen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert