Porto vann sannfærandi sigur gegn Vitoria, 29:15, í efstu deild portúgalska handboltans í dag.
Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson var að vanda góður fyrir Porto en hann skoraði fjögur mörk.
Porto situr í öðru sæti deildarinnar með 22 stig eftir 12 leiki.